Félagsmenn* aðildarfélaga SGS hafa nú ókeypis aðgang að Curio App

Félagsmenn* aðildafélaga SGS geta nú skráð sig fyrir ókeypis tímaskráningar "appi" sem getur sent tímaskráningu skv. reiknireglum og kjarasamningum í launareiknivél SGS.

* Aðeins fyrir félagsmenn þeirra stéttarfélaga sem eru með samning

Image

Appið er knúið áfram af Curio Time sem er íslenskt tíma- og viðverukerfi

Með því að svara nokkrum spurningum á skráningarsíðu stéttarfélags þá er hægt að hala niður tímaskrángarkerfinu Curio App sem getur haldið utan um viðveru félagsmanna og athuga hvort laun þeirra og aðrar greiðslur séu í samræmi við kjarasamninga. Appið er ætlað þeim sem vinna dagvinnu á tímalaunum en passar ekki fyrir þá sem eru á föstum mánaðarlaunum óháð tímaskráningarskyldu.

  • Félagsmenn Hlífar geta skráð sig á heimasíðu Hlífar fyrir ókeypis tímaskráningar appi
  • Skoðaðu allt um Curio Time tímaskráningakerfið hér:
01

Tímaskráning

Félagsmaður skráir sig sem notanda á heimasíðu stéttarfélags og halar niður Curio App og byrjar að stimpla sig inn til vinnu í appinu.
* Takkinn "Reikna laun" í Curio App er aðeins virkur hjá þeim stéttarfélögum sem hafa gert samning fyrir félagsmenn sína.
02

Útreikningur

Með einu smell sendir Curio App skráðar vinnustundir inn í reiknivél SGS og getur félagsmaður skoðað launaútreikning sinn í farsíma sínum í lok mánaðar og borið þá saman útborguð laun og launaútreikning reiknivélar.
03

Samanburður

Eftir að útreikningur liggur fyrir getur félagsmaður borið saman launaútreikning frá Curio App og launaseðil atvinnurekanda.

Algengar spurningar:

Þarf ég að vera félagsmaður stéttarfélags til að fá ókeypis tímaskráningar app?
- Appið er einungis ókeypis fyrir félagsmenn þeirra stéttarfélaga sem hafa gert samning um notkun á appinu.

Hér er um fyrstu útgáfu af reiknivél SGS að ræða með tengingu inn í Curio App og m.a. á eftir að leggja lokahönd á þýðingar fyrir fleiri tungumál og fleira.
Notendur Curio App eru beðnir að koma ábendingu og athugasemdum á framfæri á info@curiotime.is bæði vegna Curio App og Reiknivélar SGS.