Við kynnum snjallforritið Curio APP sem er bæði hægt að tengja við Curio Time og Curio Office "fjarvinnnuskrifstofuna" eða bæði forritin í senn.
Aðgangsorð
Starfsmenn þurfa "ekki" að skrá aðgangsorð sitt þegar þeir stimpla sig inn eða út frá vinnu.
Orlof og orlofsbeiðnir
Starfsmenn geta sent inn beiðni um orlof frá appinu inn í Curio Time og fengið staðfestingu á orlofstíma staðfest inni í Curio App.
GPS skráning á kort
Appið er GPS tengt og fer staðsetning inn í Curio Time við innstimplun og útstimplun ef það er virkt í Curio Time.
Verkefni
Starfsmenn geta stimplað sig með aðgangsorði á milli verkefna án þess að stimpla sig út úr vinnu. Hægt er að skoða nákvæma tímaskráningu pr. verkefni í Curio Time og Curio Office.
Taktu mynd af verkinu
Þú getur tekið mynd í Curio App af verkefni áður en þú byrjar á því eða eftir á og vistast þá myndin inn í verkefnið þitt. Það fylgir 2GB diskapláss öllum áskriftum.
Skilaboð
Hægt að skrifa og senda skilaboð til launafulltrúa.
IP tala
Möguleiki á að virkja upp IP tölu þannig að farsíminn virki aðeins á ákveðnum stað.
Batterí
Tímaskráning heldur áfram inni í appi ef rafhlaðan klárast því appið er tengt inn í stjórnborð Curio Time. Skráning glatast því ekki þó síminn dettur út eða batterí klárast.
Upplifun skiptir máli
Upplifun notenda Curio App var lykilatriði í allri hönnun hjá okkur. Viðmótið er hannað sem einfaldast og auðvelt er að læra og notast við forritið.
Eyddu óvissu um viðveru!
Ef þú merkir staðsetningu starfsmanni þegar hann kemur til eða frá vinnu þá hefur starfsmaður sannað viðveru sína og óvissan sem margir eru að lenda í með inn og útstimplun er úr sögunni. Til að sanna viðveru starfsmanna fyrir viðskiptavinum er gott að nota GPS tímaskráningakerfi sem sýnir hvar starfsmaður var staðsettur þegar hann kom eða fór frá vinnustað.
Uppfærslur
Við gefum reglulega út uppfærslur fyrir Curio App og uppfærist Android forritið sjálfkrafa en það þarf að haka við í IOS útgáfunni hvort notandi vilji uppfæra sjálfkrafa
Curio App getur tengst launareiknivélum 39 stéttarfélaga
UX design hefur hannað launareiknivélar sem ná utan um kjarasamninga 39 af 47 aðildarfélögum innan ASÍ. Nú býðst þessum 39 stéttarfélögum að nýta sér kosti Curio App og geta þá starfsmenn skoðað launareikning miðað við tímaskráningu og kjarasamninga þessara félaga.
Ekkert svindl í launaútreikning starfsmanna!
Með einum smell* hafa 100.000 félagsmenn 39 stéttarfélaga möguleika að reikna sjálfir út laun sín!
Curio App getur sent tímaskráningu beint inn í reiknivélar 39 stéttarfélaga ASÍ. Nú hafa því um 100.000 félagsmenn möguleika á að skoða nákvæman útreikning launa miðað við tímaskráningu í Curio App.
*Takkinn " Reikna laun " er virkur fyrir þau stéttarfélög sem hafa gert samning um notkun á Curio App.